----- júní 12, 2009 -----

*Geisladiskabúð Valda*

Ef ég væri ferðamaður og á Íslandi væri ég alveg til í að vita af þessu litla leyndarmáli miðbæjarins. Geisladiskabúð Valda er æðisleg búð með sál. Ég fór þarna inn í fyrsta sinn nú um daginn, því ég var að leita að gjöf og hugsaði með mér afhverju ekki hér? Þó Valdi hafi ekki átt það sem ég var að leita að, enda svolítið sérhæft og ekki algengt, þá voru margir titlar sem ég væri alveg til í að eiga í DVD hillunni heima hjá mér.
Viðskiptavinirnir eru líka einstaklega fróðir og til í að deila visku sinni með nýrri viðskiptavinum og það óumbeðnir. Þegar ég leit inn var stór og mikil Star Trek umræða í gangi þar sem einn viðskiptavinurinn hafði horft á allar þáttaraðirnar í einu, öðrum viðskiptavinum til mikillar undrunar og aðdáunar. Ég hef nú ekki gerst svo frægur að hafa horft á þær þáttaraðir en þarna voru aðrar þáttaraðir sem ég væri alveg til í að horfa á í einum rikk.
Mynddiskarnir eru heldur ekki dýrir og þá alveg stórkostlega ódýrir ef maður er ferðamaður. Geisladiskabúð Valda ætti að setja í ferðamannabækling þar sem mælt er með skemmtilegum verslunum með sál.

Geisladiskabúð Valda á Vitastígnum.

Flokkar: ,

- dóri skrifaði 20:00
Comments: Sendu inn athugasemd