----- maí 11, 2009 -----

*Að vera eða ekki að vera herramaður?*

Eftir annars ágætis helgi, blandaða gleði, vinnu og hvíld standa nokkrir hlutir upp úr. Í gær hitti ég t.d. forsetahjónin Ólaf Ragnar og Dorrit ásamt allri gömlu og nýju ríkisstjórn Íslands á Bessastöðum. Þetta þykir kannski merkilegt en merkilegra fannst mér þó að hitta frv. formann BDSM á Íslandi ásamt núverandi gjaldkera sem voru þó á annarri samkundu kvöldinu áður.
Það eru ekki allir sem kunna að haga sér við slíkar aðstæður þar sem verið var að kenna manni að fista, skera pung eða gera heimatilbúna stólpípu. Reglan er að haga sér ávalt eins og sönnum herramanni og sína viðkomandi áhuga, þannig móðgar maður engan. Áhugavert þótti mér að heyra frv. formanni segja að það sem henni þótti hvað verst í sinni stjórnartíð var Byrgismálið og að hún hafi þurft að svara mörgum spurningum fjölmiðla varðandi Guðmund nokkurn sem kenndur er við sama mál. Hún sagði mér einnig að ef ég vildi láta skera í punginn á mér þyrfti ég að vera edrú og alsgáður, ég afþakkaði pent þrátt fyrir gott boð enda herramaður.

Herramenn eru oft með slifsi enda þeirra helsta auðkenni.

Flokkar:

- dóri skrifaði 11:05
Comments:
Ég er búinn að kaupa sósulit og flaskan því tilbúin fyrir næstu helgi.
 
Sendu inn athugasemd