----- maí 26, 2009 -----

*Uppáhaldsísinn*

Þau eru ófá skiptin sem ég hef skrifað um Paradís-ísinn hér á þessari heimasíðu og hef ég nú fundið enn eitt tilefni til að skrifa um þetta góðgæti. Við skruppum til Danmerkur í síðustu viku þar sem ýmislegt var brallað svo sem dýragarður, tívolí og matsölustaðir. Einn staður sem var heimsóttur oftar en einu sinni var að sjálfsögðu Paradís. Þessi æðislegi ís sem mér þykir svo góður var alveg eins og ég hafði munað eftir, algjört æði.
Mér þótti það þess vegna hræðilegar fréttir þegar mér var sagt að Paradís fær oftast fall einkunn hjá heilbrigðisyfirvöldum vegna skort á hreinlæti. Þetta hefur verið fjallað um í fjölmiðlum þar ytra og hefur staðurinn ekki náð að bæta sig þrátt fyrir gagnrýni.
Ég lét þessar fréttir samt ekki hafa nein áhrif á mig enda kominn í himnaríki þegar ég er kominn með Paradís-ís í hendurnar og því alveg sama þó einhver hafi verið að skíta í jarðaberjaísinn.

Þrjár kúlur af paradís í boxi, í sumarsólinni í Köben.

Flokkar: , ,

- dóri skrifaði 17:24
Comments:
mmmmm... Paradís, verd ad taka undir med høfundi ad thetta er uppáhaldsísinn.
Tek kannski ekki undir ad mér sé sama ad einhver hafi verid ad skíta í jardaberjaísinn, en hann er samt uppáhalds.
Hugsa ad ég komi vid heim á leid heim úr vinnunni og fái mér thrjár kúlur líkt og myndin sýnir!
 
BTW; takk kærlega fyrir sídast.
Sjáumst hress og kát í júlí!
 
Danska krónan í 25 kalli og þú, fátækur námsmaðurinn ferð til útlanda.
Ertu að sýsla með eiturlyf Steindór
 
Ja, sennilega svo pad er
 
Sendu inn athugasemd