----- maí 04, 2009 -----

*Er sumarið komið?*

Þó að sumardagurinn fyrsti sé liðinn, lóan komin og fólk farið að sjást á stuttbuxum þá er það bara engin ávísun á það að sumarið sé komið. Ég er byrjaður að hjóla í vinnuna sem er kannski ekki svo merkilegt sem slíkt en það er bara ekki auðvelt í grenjandi kaldri rigningunni sem lemur á andlitið á meðan vindar blása svo mikið að maður hreyfist varla úr stað.
Ég vona að þetta sé ekki það sem koma skal og að sumarið hér á Íslandi verði glatað. Sumarið í fyrra var alveg stórkostlegt og ég er alveg til í annað slíkt.

Frostið gerir svona flott listaverk.

Flokkar:

- dóri skrifaði 17:04
Comments:
mjog ahugavert, takk
 
Sendu inn athugasemd