----- apríl 28, 2009 -----

*Stutt í spunann*

Þá eru kosningarnar búnar og uppbygging landsins getur hafist að nýju. Hér á Grettisgötunni er einnig mikil uppbygging. Við höfum orðið var við nokkurn fjölda kóngulóa á vappi um íbúðina. Sumar eru að spinna fyrir sumarið, aðrar eru bara eitthvað á röltinu.
Þeim er hent út jafn óðum og þær finnast enda erum við lítið fyrir spuna og kvikindi með fleiri en tvær fætur. Það væri nú gott ef ráðamenn landsins væru jafn kappsamir og kóngulærnar.

Jón forseti horfir til Alþingis í sólinni, hann hefur orðið vitni af mörgu undanfarið kallinn.

Flokkar:

- dóri skrifaði 10:57
Comments: Sendu inn athugasemd