----- apríl 21, 2009 -----

*Listaverk borgarinnar*

Það vakti athygli mína á göngu um borgina þetta ræsislok. Ég hef hoft áður séð svona lok en aldrei fyrr séð lok með mynd af kaktus. Ég fletti listaverkinu upp í google leitarvélinni og fékk þar fína útskýringu á vefnum tónlist.is. Næst þegar ég mun ganga Austurstrætið mun ég staldra við og meta þetta lok á annan hátt en áður.

Það skemmtilega við þennan gjörning er að hann vakti mig til umhugsunar og löngunar til að vita meira. Ég fór því lengra með pælingar mínar og fróðleiksþorsta og skólaði sjálfan mig til. Er það annars ekki ein af mörgum ástæðum listarinnar?

Flott listaverk í Austurstræti sem ber lítið á.

Flokkar:

- dóri skrifaði 23:16
Comments: Sendu inn athugasemd