----- apríl 22, 2009 -----

*Ég vill ekkert vesen og allt í góðu lagi*

Ég er einn heima, með popp í skál, fartölvuna á lærunum og stórkostlega kvikmyndasýningu fyrir framan mig í sjónvarpinu. Lífið gæti bara ekki verið betra allar áhyggjur gjörsaml... FLÚNKI!... bíddu nú við, hvað var þetta? Ekkert rafmagn!

Þeir hjá orkuveitunni þurftu að taka rafmagnið af í gær vegna vinnu í dreifistöð nr.9 í gærkveldi. Þetta er í annað skiptið með mjög stuttu millibili nú í vor.
Allt í einu leið mér eins og hústökumanni í myrkrinu og fannst ég ekki vera lengur heima hjá mér. Rafmagn er nokkuð sem við vesturlandabúar lítum á sem sjálfsagðan hlut og það er þess vegna sem ég vill ekki að það sé tekið af mér þegar ég þarf hvað mest á því að halda. Ég rifjaði því upp lítið lag sem varð vinsælt fyrir nokkru og fyllti svo í eyðurnar í morgun með hjálp internetsins. Það hljómar svona...

Pabbi hvaðan kemur rafmagnið?

það er ættað ofan úr fjöllunum,
og það streymir neðanjarðar
en kemur svo loks í ljós
ljósið leiðir myndir inn í sjónvarpið
(bakraddir: sjónvarpið)
sem ég kalla síðan fram á tölvuskjá
ég fæ 100 þúsund hluti til að horfa á

Viðlag:
Svona viljum við hafa það
ekkert vesen og allt í góðu lagi

jörðin gefur okkur orkuna
og við skilum henni til baka
svo hún geti haldið áfram að gleðj-okkur
þannig erum við bæði væn og græn

Viðlag:
Svona viljum við hafa það
það kemur heitt og kalt með hverjum krana
Svona viljum við hafa það
ekkert vesen og allt í góðu lagi


Mér leið eins og hústökumanni, með ekkert rafmagn að reyna að búa mér til heimili.

Flokkar:

- dóri skrifaði 12:03
Comments:
já svona vil ég sko hafa það!!!
ótrúlegt líka hvað manni dettur mikil vitleysa í hug þegar rafmagnið er tekið af manni ... þúist þá er góður tími til að
*horfa á vídeo
*baka
*elda (er ekki með gas)
*strauja
*hringja (í þráðlausa símanum)

og svo margt fleira sem er gott að nýta rafmagnsleysið í ;o)
 
Sendu inn athugasemd