----- apríl 14, 2009 -----

*Staðreyndir heilsunnar*

Það er alveg merkilegt hvað heilsuátök endast lengi í tísku. Fólk úðar í sig grænmeti, hleypur um á hlaupabrettum í stórum verksmiðjusölum og drekkur vatn útí það óendanlega. Og til hvers?
Ég sá frétt á mbl.is um daginn þar sem stóð að íslenskir karlmenn verða manna elstir, 80 ára. Mig langar bara ekkert til að vera rosalega gamall. Og miðað við það fæði sem þessir 80 ára gamalmenni voru að éta þegar þeir voru á mínum aldri, þá lítur bara allt úr fyrir það að ég verði jafnvel eitthvað eldri. Þannig að ég ætla bara að halda áfram að borða hamborgara, kex, ostapopp, Royal búðing, Pepsí Max og rjóma eins og enginn sé morgundagurinn.

Það settist risastór vöðvi fyrir framan mig á Þjóðarbókhlöðunni um daginn, þetta var þessi týpa sem borðar búst og hleypur allar sínar leiðir. Þessi risastóri vöðvi tók upp á því að prumpa og ég held að það sé óhætt að segja að það er betri lykt í skítalyktaverksmiðjunni á Gufunesi heldur en á fjórðu hæð í Þjóðarbókhlöðunni þennan umrædda dag.
Og ef þetta er lyktin sem maður lætur frá sér þegar maður er heilbrigður þá vill ég bara vera stíflaður og asnalegur að innan. Ég meina þetta eru ekki mörg ár sem við erum í þessum heimi og til hvers að eyða tímanum í það að borða eitthvað sem manni finnst vont og gera eitthvað sem manni finnst leiðinlegt? Það kom líka fram í annarri grein á mbl.is að það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig. Þannig að ég mun bara byrja þegar ég er orðinn svo c.a. 50 ára.

Það sem veldur mér samt áhyggjum er að í þriðju greininni sem ég las á mbl.is stóð að maður byrjar að hrörna við 27 ára aldur. Sem segir mér að ég er byrjaður að hrörna. En það er ekkert sem hreyfing eða mataræði getur breytt þannig að...

Mikki D. á góðum degi.

Flokkar:

- dóri skrifaði 02:42
Comments:
Það skiptir í raun engu hvað maður borðar, maður þarf bara að borða í hófi. Það er aðalmálið.

fólk hefur verið að fitna síðustu áratugina því að skammtarnir hafa alir verið að stækka á meðan að fólk vinnur miklu meira sitjandi en það gerði áður.
 
Sendu inn athugasemd