2. janúar 2012

Sama myndin?

Í ELKO blaðinu í dag var verið að auglýsa afslátt á DVD disk sem hefur að geyma sex kvikmyndir. Nokkuð góður „díll“ þar á ferð enda er maður að borga aðeins 499 krónur fyrir myndina. Þegar betur er að gáð eru þetta kannski ekki svo góð kaup því eins og sést á myndinni hér fyrir neðan þá er sama myndin tvisvar sinnum eða svona næstum því. The Last Samurai og Dances with Wolves er nefnilega nákvæmlea sama myndin, The Last Samurai er bara endurgerð á þeirri síðarnefndu. Þeir tóku bara út úr handritinu þar sem stóð indjánar og settu í staðinn samurai-ar og þá var komin ný mynd en sama handrit.
Svo er það bara tilviljun að þessar myndir séu á sama DVD-disknum. Ripoff?



1. janúar 2012

Gleðilegt nýtt ár

Fjórar bloggfærslur voru gerðar á síðasta ári. Einstaklega lélegur afrakstur það og því ekki úr vegi að gera heiðarlega tilraun til taka skrifunum fastari tökum á nýju ári.
Fyrsta bloggfærslan á síðasta ári fjallaði um árið 2010, þar sem horft var um höxl og merkir atburðir frá árinu áður tíundaðir. Ekki verður brugðið útaf vananum nú í ár og hér kemur því annáll 2011.

Á árinu 2011 var myndin okkar tilnefnd til Eddunnar, íbúð keypt, búið til barn, flutt úr 101, ferðast til Noregs, nýja íbúðin gerð upp, teknar upp kartöflur, stúlka fædd og svo skírð Kolfinna, ferðast til Lubeck þar sem myndin okkar var tilnefnd sem besta heimildarmyndin og jólin haldin hátíðleg.

Þetta virðist ekki vera neitt sérstaklega mikið þegar allt árið kemst fyrir í nokkrum línum en þetta var gott ár, virkilega gott ár og við erum þakklát fyrir það.

Gleðilega hátíð.

23. desember 2011

*Jólakort VG*

Hvernig er það... er jólakortið frá Vinstri grænum tekið á Íslandi? Hvar þá?


27. nóvember 2011

11 ár og enn að...

Fyrir 11 árum byrjaði ég að blogga, þ.e.a.s. með hléum...

...kannski að maður geri þetta í 11 ár í viðbót?

23. nóvember 2011

*Kominn aftur?*

Þegar register.com sendi mér tölvupóst nú um daginn þar sem ég var spurður hvort ég hefði áhuga á að lengja áskrift mína á léninu www.steindor.com þá þurfti ég að hugsa mig um. Ég hef ekki bloggað síðan í janúar á þessu ári enda nóg annað að gera, þá sérstaklega á facebook, þannig að þessi heimasíða hefur legið í dvala.
Ég ákvað því að taka upp pennann en eina ferðina og byrja aftur að blogga... að minnsta kosti einu sinni í mánuði...
... sjáum til hvernig mér gengur með það.



9. janúar 2011

*2010*

Eftir að fjölmiðlarnir hafa dælt yfir mann fréttaannálum og völvuspádómum er kannski við hæfi að maður lýti sjálfur um öxl og fari yfir árið. Árið 2010 var án efa árið sem braut blað í mínu lífi. Ég ætla nú ekkert að segja frá öllu því sem ég gerði en mig langar að nefna stóru atriðin, svona til að endurspegla þakklæti mitt.
Við Nanna kláruðum bæði Mastersgráðurnar okkar frá HÍ, ég varð 30 ára, ég og Nanna giftum okkur og litla fyrirtækið okkar frumsýndi sína fyrstu heimildarmynd.
Svo er bara spurning hvernig maður toppar svona gott ár? Ég byrjaði á því að kaupa mér nýjan síma. Það er allaveganna byrjun.

Við hjónin...

27. nóvember 2010

*10 ára bloggsaga*

Það eru 10 ár í dag síðan ég byrjaði að blogga, 27.nóvember 2000. Ég hélt upp á daginn með því að kjósa á stjórnlagaþing og borða appelsínugult M&M.
Eins og hjá svo mörgum öðrum hefur andargiftin komið í bylgjum og með auknu annríki er minni tími til þess að setjast niður og skrifa færslur á internetið. Ég efast um það að ég eigi eftir að halda þessari síðu uppi í 10 ár til viðbótar en maður veit aldrei.
Maður hefur skrifað misgáfaðar færslur í gegnum tíðina, þá sérstaklega á fyrstu árunum, og reynt að vera með einhvern rauðan þráð í þessu öllu saman með misgóðum árangri.

Í dag blogga ég bara þegar ég nenni, man og hef eitthvað að segja.

30. október 2010

23. september 2010